Karfan

Aukasendingin: Hannes Jónsson ,,Við eigum að njóta, hafa gaman og vera stolt af þessum árangri"

Karfan Season 9 Episode 10

Aukasendingin settist niður með Hannesi Jónssyni framkvæmdarstjóra KKÍ og varaforseta FIBA til þess að ræða EuroBasket 2025, væntingar til liðsins, muninn á mótunum 2015, 2017 og í dag, borgina Katowice og margt fleira.

Upptakan er tekin á ferðalagi íslenska liðsins frá Litháen til Póllands þar sem það er nú við lokaundirbúning sinn fyrir lokamótið sem hefst með leik gegn Ísrael komandi fimmtudag 28. ágúst í Katowice í Póllandi.

Aukasendingin er í boði Bónus deildanna, Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.