Karfan

Fyrstu fimm: Hermann Hauksson

Karfan Season 8 Episode 2

Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn og sérfræðingur Körfuboltakvölds Hermann Hauksson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.

Ferill Hermanns í meistaraflokki var frá 1990 til 2002, en á honum lék hann fyrir KR, Njarðvík og Saint Niklas í Belgíu, en árið 1997 var hann valinn besti leikmaður efstu deildar á Íslandi. Þá var hann einnig á þessum tíma, 1994 til 2000 lykilleikmaður í íslenska landsliðinu, en í heild náð hann 64 leikjum fyrir Ísland.

Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.